Back to homepage

Upplýsingabanki eldra fólksins

Velkomin í Upplýsingabanka eldra fólksins

Margir þurfa að leita sér upplýsinga um þjónustu og aðstoð við eldra fólk og á það ekki hvað síst við um aðstandendur þeirra sem eru farnir að eldast og eiga orðið erfitt með að sjá um sig sjálfir. Hvað er til ráða og hvert á að leita?

Upplýsingabanka eldra fólksins er ætlað að greiða leið að helstu upplýsingum sem snerta daglegt líf og réttindamál eldra fólks. Upplýsingum, sem finna má á vefsíðum stofnana og fyrirtækja víðs vegar, en hagræði er af, að hafa á einum stað.  Þetta er þróunarverkefni og bankinn er alls ekki tæmandi.

Upplýsingabankanum er skipt í nokkra málaflokka, ss. heilbrigðisþjónustu, lífeyrissjóði og félagsstarf og þeir flokkar greinast í undirflokka eftir atvikum. Undir flokknum  „heilbrigðisþjónusta“ má þannig finna upplýsingar um heilsugæslustöðvar, bæði á landsbyggð og höfuðborgarsvæði, sjúkrahús og mál sem tengjast sjúkratryggingum.

 




Fara á lifdununa.is

Ábendingar

Upplýsingabankinn er tilraunaverkefni sem verður þróað áfram. Ef þú hefur ábendingar um það sem betur má fara í bankanum, hafðu endilega samband við okkur á netfangið upplysingabanki@upplysingabanki.is